.:::Eitt eilífðar smáblóm:::.

"Everyone has a little dirty laundry"

16.10.2008 19:47:58 / Steinunn

..Nýjir tímar..


Ég er flutt yfir á bloggar.is þar sem að ég tók frá steinunn.bloggar.is fyrir mörgum árum:haha:
Nýja bloggið mitt

Endurnýjið mig endilega í tenglunum hjá ykkur;)

» 26 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 12:37:50 / Steinunn

13.október.2008


Helgin var ljúf og notaði ég hana í afslöppun og hreyfingu að þessu sinni.. Ánægð með ákvörðun mína að sleppa balli og fara í staðinn í góða göngu:haha:

Fyrir helgina var ég að vinna á Reyðarfirði og var það bara skemmtileg tilbreyting:) Sendi grimmt og var ánægð með dagana..
Sigurður Alex gisti hjá mér á föstudaginn og var hann svona temmilega hress en ekkr of því að hann er með einhverja berkjabólgu sem að fer vonandi bráðum að lagast.. Hann var líka ánægður með frænku sína þegar að við Andri drifum hann á rúntinn Fljótsdalshringinn og hann brosti allan hringinn annan tímann8)

Ég er að velta fyrir mér að breyta um blogg.. Á nefnilega annað sem að er www.steinunn.bloggar.is :) Er orðin svo leið á blog.central því að tenglarnir mínir eru allir í rugli og eitthvað.. En á hinni eru þeir allir í stafrófsröð.. Endilega kíkjir á hina:) Guðrún systir á fallegu myndina efst á síðunni..

Annað er ekki að frétta nema að ég get ekki beðið eftir að koma heim á eftir og horfa á alla þættina sem að ég er að "kaupa" af netinu;) Guðrún bjargaði mér alveg í gær og vil ég þakka henni fyrir það að ég sé brosaði allan hringinn í dag;)

Best að fara að vinna;) Þangað til næst..




» 22 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 18:51:13 / Steinunn

8.október.2008


Mér er búið að takast ágætilega að halda mig frá fjölmiðlum og mér líður bara frábærlega með það:) Fór reyndar í bankann minn Kaupthing í dag því að ég átti leið hjá og athugaði hvort að minn sparnaður væri ekki öruglega öruggur inn á sparnaðarreikningnum mínum sem að hann er og verður vonandi:) Ég var enn sáttari með það..

Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég fékk að fá comment á mig að ég væri ekki búin að segja frá áformum okkar Andra eftir áramót.. Hef bara ekki bloggað um það því að við vitum þetta ekki fyrir víst fyrr en sennilega í desember..
En planið er sem sagt að flytja til Danmerkur eftir áramót því að Andri er búin að sækja um skóla í Kaupmannahöfn og ætlar hann að læra byggingafræði8) Planið er að ég fari bara að vinna enda lítur út fyrir eins og staðan er núna að okkur veiti ekki að því.. Aldrei að vita samt nema að maður finni sér eitthvað spennandi nám..
En þetta er alls ekki orðið víst þannig að það er bara að bíða og vona:d En ég mun koma með nánari fréttir af þessu ekkert orðið víst enn þá..

Jæja það er komin matur:) Fiskur á diskinn minn:haha:

» 22 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 11:47:55 / Steinunn

7.október.2008


Er allt að fara til fjandans? Ég nenni ekki einu sinni að hlusta á útvarp, horfa á sjónvarp eða lesa fréttamiðla á netinu.. Ég hef mikla trú á því að þeir nái að bjarga þessu fyrir okkur, enda eru þessir menn kosnir á þing til að gera það og ég legg alfarið allt mitt í þeirra hendur þó að ég skilji ekki baun í þessu en þeir hljóta að gera það.. Þannig að ef að þið viljið heyra mína skoðun hlustið/horfið/lesið allt um þetta alls staðar en ég ætla ekki að hafa skoðun á þessu.. Já þetta er frekar fúlt og allt það en ég nenni bara ekki að hafa áhyggjur:!: Og er orðin hundleið á fréttum allan síðasta mánuð..

Þetta virðist samt leggjast á þjóðina sem krabbamien þannig að það er ekkert annað í fréttum en þetta.. Þetta er það eina sem að fólk talar um8| Ég ætla samt að reyna að finna eitthvað annað að ræða um.. Það tengist þessu samt því miður óbeint:haha:

Það lítur út fyrir það að ég sé ekki á leiðinni til Reykjavíkur þessa helgina allavegana.. Held að maður ætti bara að halda sig heima.. Aldrei að vita nema ég taki næstu helgi í það að fara á Reyðarfjörð og athuga hvort að ég finni mér íþróttaskó þar:) Reyðarfjörður/Reykjavík næstum því það sama.. hehe:haha:

Eins og staðn er þessa dagana þá er ég ekki mjög bjartsýn með  flutninga okkar til Danaveldis en ég er samt að spá í að gefa bara skít í þetta.. Lifa bara í pappakassa fyrsta mánuðin, fá mér vinnu og fá svo útborgað og vera óegeðslega rík í íslenskum krónum:haha: Það er planið.. Ég er bjartsýn kona og vona að ástandið hafi bara lagast helling þá.. En ef ekki þá verð ég föst  atvinnulaus á Egilsstöðum um áramótin.. Hljómar ekki vel þannig að ég held að ég haldi mig bara við fyrra plan8) Frábært að þetta skildi gerast akkurat núna.. Góður tími :$

Ég er bjartsýnni en sólin og ætla að reyna að halda því þannig:d


» 29 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 16:03:52 / Steinunn

3.október.2008


Ég held að ég sé endanlega að missa það8|
Ég er svo pirruð í mínu hjarta eftir þúsundustu ferð mína í kaupfélagið síðasta mánuðinn að athuga með skó sem að ég hafði auga stað á og voru senn væntanlegir..
Hérna kemur öll sagan..
Ég fór á miðvikudeginum 3.september eða fyrir 4 vikum og var þá litið á skó sem að mér leist svo vel á þeir voru í góðu lagi fyrir fótinn á mér og léttir og fallegir.. Ég spurði þá í fatadeildinni hvort að þeir væru eitthvað væntanlegir aftur þar sem að mitt númer var ekki til.. Konan var voða góð og hringdi fyrir mig suður í heildsöluna og jú þeir væru væntanlegir til hans eftir viku og kæmu til hennar sennilega á fimmtudeginum 12.sept/föstudeginum 13.sept í vikunni eftir.. Ég reyndar þurfti skó sem fyrst en hugsaði já mér líst svo geggjað vel á þessa að ég ætla bara að bíða, vika er nú ekki langur tími og enda voru þeir ódýrir eða á 6.590.- krónur..
Vikuna eftir fór ég á fimmtudeginum 12.september og spurði hvort að þeir væri komir en nei þeir höfðu tafist eitthvað í skipinu þannig að þeir kæmu ekki alveg strax og ég ákvað þá bara að bíða fram yfir helgi sem að athuga með þá.. Ég fór þá aftur eftir helgina og þá var ég orðin nokkuð óþolinmóð og spennt að bíða en mér var tjáð að þeir væru ekki enn komnir.. Síðan nennti ég ekki alltaf að vera að kíkja í búðina þannig að ég setti Sirrý bara í það að fylgjast með þessu en spurði samt alltaf tl öryggis því að ég var orðin svo spennt.. Þetta gekk svona í 2 vikur og við systur orðnar báðar mjög uppteknar að því hvort að þeir væru ekki að fara að koma..
Núna á miðvikudaginn 1.október fór ég síðan í búðina og var nóg boðið og vildi vita hvar þessir skór væru eiginlega.. Þá hringdi hún suður og hann sagðist hafa sent þá deginum áður og þeir væru væntanlegir.. Þá varð ég spennt og hugaði loksins loksins;)
Síðan tala ég við Sirrý í gær fimmtudaginn 2.október og spyr hvort að þeir væru komnir í hús en nei þá týndist þessi eini kassi í flutningnum og hún væri búin að hringja úr um allt en án árangurs.. Þarna var ég eiginlega farin að hlægja að þess og ákvað bara að bíða þeir hlitu að koma á morgun..

Síðan fór ég í morgun föstudaginn 3.október og þá hélt konan sem að ég talaði við að þeir væru komnir en þær ættu bara eftir að taka upp úr kössunum og ég ætti bara að koma eftir hádegi..
Núna rétt áðan fór ég í mína síðustu skóferð í kaupfélgið í bili allavegana.. Skórnir voru komnir jeijjjjjjjj hugsaði ég og var geggjað spennt samt pirruð yfir því hverju langan tíam þetta allt saman tók.. Hún tekur þá skó upp úr kassa og sýnir mér þá en tekur það fram að þetta væri svo önnur típa af típunni sem að ég var að skoða upprunalega.. Já ég tók skóna og sá að þeir voru ekkert eins og hinir:!::!::!::!: Í fyrsta lagi voru þeir bláir og svartir en ekki svartir og appelsínugulir, þeir voru allt öðruvísi í laginu, ekki jafn háir upp á leggina og hinir og alls ekki jafn léttir.. Þarna var ég orðins svo pirruð að ég hefði getað grenjað.. Til að gera þetta enn betra þá sagði hún mér að þessir væru aðeins dýrari eða að þeir kostuðu eitthvað um 11.000.- krónur:whut: Ég þakkaði pent fyrir mig og fór bara aftur í vinnuna..

Núna þarf ég að byrja á byrjunarreit með skóna og ég sem að er búin að fara út að ganga í sólalausum skóm í 4 vikur til að bíða eftir þessum.. Hugsa að ég fari á morgun í Skóga og reyni að finna eitthvað þar.. En bitur er ég og sé fallegu skóna í kaupfélaginu í hillingum8|
Lífið er sannarlega erfitt..



» 29 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 14:12:18 / Steinunn

30.september.2008


Í dag snjóaði hjá okkur8) Þannig að það þýðir að kjellan þarf þá og þegar að fara að splæsa á nagladekk, en ég hef trú á því að það sleppi í einn mánuð enn..

Guðrún systir kom um hlegina:haha: Það er alltaf svo gaman að fá hana í heimsókn.. Við skelltum okkur meirað segja á ball sem að var alveg geggjað skemmtilegt enda var frítt inn og maður ekki að tapa neinu þótt að það hefði verið leiðinlegt;) hehe..
Guðræun einmitt bjó til facebook handa mér og ég er orðin alveg húkkt.. Miklu skemmitlegra en myspace:d Gaman að finna fólk sem að maður hefur ekki séð lengi og eiginlega búi að gleyma að væri til..

Nýjustu fréttir af jólaundirbúningi er góður:) Ekki seinna vænna að fara að plana kaupa á hinu ýmsa drasli ef að maður á að hafa efni á þessu þar sem að íslensku krónumálin standa víst ekki vel eða allavegana er ekki annað rætt í fréttunum en að við séum dauðadæmd.. Jólakortin búin og planið er að reyna að byrja á fullu næstu vikur að kaupa gjarfirnar allavegana flestar.. Ég ætla mér nefnilega að lifa eins og drottning um jólin hvort sem að krónan sé lág eða ekki;)

En best að fara að gera eitthvað hérna í vinnunni:) Skartir glansar ekki að sjálfum sér:haha:


» 22 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 14:02:18 / Steinunn

22.september.2008


Eins og fram koma í fyrri færslu minni er ekki mikið fréttnæmt að gerast hjá mér þessa dagana.. Ætla samt að skifa eitthvað sniðugt;)

Allt gengur vel í vinnunni er nokkuð vel komin inn í þetta;) Sem að er fínt.. Svolítið rólegt á köflum en alltaf eitthvað að dunda við.. Gott að vera byrjuð að vinna aftur.. Fyndið hvað maður getur fengið leið á því að vera í fríi;) En samt er það svo notalegt..

Skellti mér út að ganga í morgun eins og svo oft áður og það er alltaf að vera kaldara og kaldara og þó ekki sé talað um þennan blessaða vind sem að breytist með hverri m+ínótunni sem að líður8| Áður en ég veit af verður komið frost og snjó.. Mér líst ekkert alltof vel á það:$ Í þannig verðir finnst mér langt best að liggja heima og horfa á tv eða eitthvað álíka nauðsynlegt:haha: Veturinn boðar líka ekki gott fyrir okkur kærustuparið því að við eigum ekki nagladekk á okkar fagurbláa eðal kagga:whut: Trúi ekki að maður þurfi bráðum að fara að huga að því..

Er eðlilegt að vera byrjuð að hugsa um jólin á hverjum degi og það er bara september? Ég er nefnilega eiginlega búin með jólakortin, byrjuð að kaupa nokkrar jólagjafir og næstum því búin að ákveða hvað á að gefa flestum.. Er orðin smeik að vera búin að gera allt í október og vera þá bara byrjuð að bíða eftir að jólin gangi í garð:d Ætli maður sé nokkurn tíman of snemma í þessu.. Vona allavegana ekki:haha:

Ætla að segja þetta gott í bili8) Þangað til næst..


» 25 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 12:17:51 / Steinunn

21.september.2008


Það sem að hefur gerst frétt næmt hjá mér síðan síðast er að ég var á keyrslu síðsla kvölds á ónemdum stað þegar að brún tófa hljóp fyrir bílinn hjá mér.. Ég náði henni ekki og er því nokkrum þúsundköllum fátækari..
                              
                          Annað hefur ekki gerst..



» 26 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 18:53:33 / Steinunn

..4..


Guðrún þetta er fyrir þig;)

Fjögu​r störf​ sem ég hef unnið​ yfir ævina:​​

1) Birtu ehf

2) Snyrtistofunni Öldu

3) Snyrtistofunni Ágústu

4) Kaupfélaginu


Fjóra​r bíómy​ndir sem ég gæti horft​ á aftur​ og aftur​:​

1) She's all that

2) Sex and the city

3) Step up

4) She's the man


Fjóri​r staði​r sem ég hef búið á:

1) Vaðbrekka

2) Brúarás

3) Kvistaland 6

4) Sunnufell 5


Fjóri​r sjónv​arpsþ​ættir​ sem mér líkar​:​​

1) Grey's anatomy

2) Gossip Girl

3) Sex and the city

4) Desperate Housewives


Fjóri​r staði​r sem ég hef heims​ótt í fríum​:​

1) Danmerkur

2) Þýskaland

3) Lanzarode

4) Costa del sol


Fjóra​r bækur​ sem ég les oft í:

1) Skipulagsbókin mín

2) Símaskráin

3) Bókhaldhald mappan mín, kannski ekki bók en eitt af því sem að ég glugga í

4) Smurbókin í bílnum


Fjóri​r staði​r sem ég myndi​ heldu​r vilja​ vera á núna:

1) Úti að tína ber eða labba um náttúruna

2) Í sólbaði á temmilega heitum stað með vind á mér

3) Upp í rúmi að horfa á nýjan þátt af einum af uppáhalds þáttunum mínum

4) Í sumarbústa að grilla og hafa það gott


Fjóra​r manne​skjur​ sem ég skora​ á að gera þetta​ eru:

1) Sirrý

2) Alda Úlfarsdóttir

3) Anna Sigurrós

4) Gréta

» 23 hafa sagt sína skoðun

08.09.2008 21:46:27 / Steinunn

8.september.2008


Afhverju ætli maður sé alltaf svona þreyttur á mánudgögum? Ætli það sé af því að þeir séu sagðir vera til mæðu? Ég er ekki frá því allavegana er ég oftast þreyttust á mánudögum8)

Reyndar gæti ástæða þreytu minnar í dag verið sú að dama skellti sér á all svakalegt sveitaball um helgina:) Hafði ekki hugsað mér að fara en hitti síðan fólk sem að sagðist vera að fara á laugardeginum og þá varð ég spennt.. Við Bylgja enduðum síðan á því að húkka okkur far með Gulla í rútunni hans8) Sem að var svona líka mikið fjör.. Góður hópur af fólki saman komið og mikið gaman.. Ég varð þó fyrir vonbrigðum að sjá ekki fleiri sveitaunga mína á svipuðum aldri og ég á dansleiknum:$ En það var fjölmennt og góðmennt:haha: Ég var reyndar næstum dáin úr svita og líkamlegri þreytu eftir að dansa hraðan dans við Aðalstein bróður:lol: En ég skapp út og náði andanum á ný.. En undir endan þá var ég orðin þreytt og langaði heim en þegar maður er út í sveit þá er ansi lagt að ganga heim þannig að ég varð bara að vera róleg.. Var mjög sátt með að fá ískalt vatn með klökum á barnum, besta vatn sem að ég hef fengið lengi:) Geirmundur var auðvitað í brjálðuðu stuði og spilaði meðal annars "bahama" og "flottur jakka":D 

Mér gengur annars bara nokkuð vel í vinnunni þó svo að ég sé enn að reyna að átta mig á hlutunum:) En læri nýja hluti um skartgripi á hverjum degi:haha: Eftir að ég verð búin að vinna þarna í smá tíma þýðir lítið að gefa mér eitthvað óekta, ég nefnilega kann orðið að lesa út úr því8)

Ég hef ákveðið að gera svona titla fyrir helgina;) Langt síðan ég hef gert svoleiðis..

Partý helgarinnar: Rútuferðin upp í Skjöldólfsstaði
Bílstjóri helgarinnar: Guðlaugur Sindri
Djamm félagi helgarinnar: Bylgja Fallega Dröfn;)
Gæs helgarinnar: Kristín Hólm
Dansfélagi helgarinnar: Aðalsteinn bróðir
Ball helgarinnar: Geirmundarball á Skjöldólfsstöðum
Matur helgarinnar: Pizzan sem að ég borðaði þegar ég kom heim úr ferðalaginu frá Skjöldólfsstöðum..
Gotterí helgarinnar: Ísinn sem að ég borðaði á sunnudaginn með ný týndum blá berjum:d
Vinbrigði helgarinnar: Að hitta ekki fleiri á mínum aldri á dansleiknum og að það var ekkert spilað í hléinu heldur var þögn..
Drykkur helgarinnar: Bacardi Rassberry út í matsjik (veit ekki hvernig það er skifað)

Held að þetta sé nóg komið af titlum.. Fékk samt nokkuð góða hugmynd fyrir ballið, eða að senda samnenum mínum síðan í 1.bekk sms og bjóða þeim á bekkjarmót á dansleiknum.. Hefði betur gert það þar sem að við mættum bara 2 ef 3:haha: Hefði verið fyndið, plana klárlega svona fyrir næsta ár;)

Nóg komið af bulli;) Þangað til næst..

» 26 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 19:03:57 / Steinunn

3.september.2008


Ég er komin heim frá Spáni og fór landið bara vel með mig og íbúar þess sem að voru svo heppnir að hitta mig;) Hótelið var ágætt bara og það var voðalega gott að fá morgunmat á morgnana og geta kíkt síðan út í sólbað.. Ég kíkti meirað segja í sjóinn þó að ég sé alveg voðalega sjóhrædd.. Fékk meirað segja smá brúnku:haha: Sátt með það..

Kom síðan heim á mánudaginn og flaug þá beint austur:) og það var voðalega gott að koma heim.. Síðan daginn eftir þá bryjaði ég að vinna í nýju vinnunni minni eða í skartgripaversluninni Birtu og verð ég þar fram að áramótum:) Voðalega lukkuleg með það..

Jæja ég nenni ekki að bloggja meira.. Ætla að fara að klára Grey's maraþonið mitt:)


» 29 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 19:41:47 / Steinunn

26.ágúst.2008


Ég er heil á húsi á Spáni.. Komum hérna í gaer um 8 leytid ad stadartima.. Okkur líkar bara nokkud vel hérna, heldur heitara en vid eigum a venjast eda um 30+ stig á daginn;) En nokkud ágnaegd med tetta og spennt ad vera herna í viku.. Roltum um í dag um svona gotu svipadan og laugarveginn og keyptum okkur baedi nyja crocs sko:haha: Svaka taegilegir:)

Sídan á Andri minn afmaeli á morgun og er planid ad gera eitthvad skemmtilegt.. Eitthvad kom hugmyndin um ad fara á hjólabát og eitthvad.. Tad er nóg ad dunda sér vid herna;)

Á fimmtudaginn er planid ad fara kannski í verslunarferd, kikja í h&m og sonna:)

Annars er allt gott ad frétta af okkur hérna hótelid er ágaett en ég bjost vid meiri af ***** fimm stjornu hoteli..

Sólarkvedjur frá Costa de sol

» 18 hafa sagt sína skoðun

15.08.2008 22:24:59 / Steinunn

15.ágúst.2008


Ég er á Hörn í Hornarfirði og búin að vera síðan á síðasta sunnudag:) Hér er ég í mjög góðu yfirlæti.. Mér finnst voða gaman í vinnunni og nota aukatímann sem ég hef í að hreyfa mig aðeins því að ég vil auðvitað líta ágætilega út í bikiní á Costa de sol eftir 10 DAGA:haha: Guð hvað ég hlakka til.. Hef samt lítið hugsað um það þar sem ég er ekki heima og auðvitað að vinna.. Annað en ég hef verið að gera í allt sumar8)
Ég fæ samt smá löngun í að koma heim þegar að ég skoða síðuna hans Sigurðar Alex, sakna þessa brjálaða grallara:lol:

Ég og Snorri vorum svo dugleg áðan að við þrifum bílinn minn (eiginlega andra) blá litla sæta og stóra bílinn hans alveg hátt og lágt að utan:d Við tókum svo mikinn tíma í minn bíl að við hörðum svo ekki tíma til að bóna hans:d8) En minn glansar núna eins og spegill.. Mér reyndar fannst bílinn hans ekkert skítugur þegar að við byrjuðum.. En ég þurfti að þrifa hann alls 7 umferðir með allskyns efnum og tuskum, þetta er allt útpælt hjá honum:) Enda virkaði það líka svona fínt..

Ég er byrjuð að leita mér að vinnu:) Jújú ég hef ekki hugsað mér að vera án vinnu að eilífu.. Voandi kemur eitthvað út úr því.. Ef ekki þá treysti ég bara á Andra:haha:

Ég ætla að fara að hafa það notalegt langur og skemmtilegur dagur að kveldi komin;) Þangað til næst.. 

» 20 hafa sagt sína skoðun

05.08.2008 14:57:14 / Steinunn

5.ágúst.2008


Sumarið er tíminn;) allavegana er sumarið að fara vel með mig.. Vorum að koma í nótt frá eyjum og sjitt hvað Þjóðhátíð er skemmtileg.. Komum reyndar ekki fyrr en kl.7 í morgun og er planið í dag að reyna að sofa sem mest.. Fólkið þarna er svo vingjarnlegt þó svo að á þessum tíma á koma mörg þúsund blinfullir einstaklingar sem að rústa gjörsamlega eyjunni.. Í gær til dæmis vorum við að labba af hótelinu með töskurnar þegar kona stoppaði fyrir okkur og bauðst til að skutla okkur og veit ekki hveru oft fólk stoppaði bílana sína og spurði hvort að maður væri villtur.. Þetta var í alla staði frábært:) Hápunkturinn hjá mér var þegar Páll Óskar söng nokkur vel valin lög8) Fegin samt að vera á gistiheimili því að við vorum ekki alveg laus við úða og rigningu..

Annars er það að á döfinni að fara til Hafnar í Hörnafirði í næstu viku og vinna.. Kannski komin tími á það að hætta að vera í sumarfríi;)
En ég ætla að fara að sofa í hausinn á mér svona sukk líferni tekur á:haha:


» 25 hafa sagt sína skoðun

17.07.2008 15:19:18 / Steinunn

17.júlí.2008


Ég er búin að hafa það svo notalegt í fríinu:) Verst að sumarið fer senn að ljúka.. Það verður fúlt;) en á eftir erum við að leggja í hann norður á land þar sem að planið er að mæta á Grenivík á föstudaginn á ættarmót hjá fjölskydunni hans andra.. Við ætlum í kvöld að fara eitthvað út í buskann og tjalda áður en að fjörið byrjar;) Síðan styttist alltaf í þjóðhátíð og er allt tilbúið fyrir ferðalagið:) Miðar komnir í hús á hátíðina og í Herjólf og gisting greidd;) ég hlakka svo til.. Síðan erum við að fara til costa de sol 25.ágúst.. Það er soddan lúxus á manni í þessari kreppu;) kreppa smekka8)

En verð að fara að pakka;)


» 21 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 28
Klukkan